ég hlusta ekki á færa og fræga menn og ég fæddist ekki í Keflavík

dagurinn í dag er búinn að vera frekar skrítinn.vaknaði eldsnemma hér í borg óttans og fór á Office1 fund, að honum loknum  fór í ég Vegghamarinn þar sem tengdamamma mín býr en hún er búin að vera á canary hjá honum Palla á Herjólfi, tók við Ólafi ofurhetju mínum yngsta syni og Berglind fór á Eimskipsfund. og við feðgar fengum það hlutverk að ná í tengdó út á flugvöll.

Við feðgarnir ókum í rólegheitum til Keflavíkur eins og lög gera ráð fyrir og yngri helmingurinn naut þess að horfa á jólateiknimyndina um Latabæ, á sama tíma og eldri helmingurinn naut þess ekki að hlusta á Íþróttaálfinn og Sigga sæta keppast um hylli kattliðugrar 13 ára stelpu með  bleikt hár og er kölluð Solla stirða. jæja eftir þessa pínlegu bílferð komum við í Kef og fórum í Leifstöð og fengum okkur kaffi og glugguðum í Fréttablaðið þegar ég var búinn með meira af svarta gumsinu en venjulegur líkami á að þola og búinn að lesa Fréttablaðið og 24 stundir upp til agna.

hringdi síminn og var ekki frúin í símanum, sú sama og heldur þeirri vitleysu fram að ég hlusti ekki á allt sem hún segir.

vitanlega svara ég með pirringi með það efst í huga að hún hafi eitthvað verið að flýta lendingartímanum svo ég yrði nú ekki of seinn. og hún spyr hvar eruð þið. nú ég er en að bíða eftir mömmu þinni, svara ég með smá karlremburödd. Berglind svarar hissa, er hún ekki lent.

Nú runnu nokkrar grímur á minn. og ég spyr. er hún ekki lent hvar.

Nú á Reykjavíkurflugvelli.

 nei nei tvær vikur frá því að kellan kom heim og var bara að koma frá Egilstöðum. þannig að við feðgarnir borguðum bara bílinn út af bílastæðinu. og ókum í rólegheitum í Grafarvoginn aftur og endurtókum Latabæjarmenninguna en eina ferðina. 

Tengdó er orðin góð eftir að öryggisvörður á Reykjavíkurflugvelli blés í hana lífi eftir að hún dó úr hlátri, þegar dóttirin hringdi í hana og sagðist vera að ná í hana því ég væri vant við látinn eitthvað að hringlast í Keflavík. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigþóra Guðmundsdóttir

Þú ert óborganlegur!!! Og að reyna að halda því fram að þú hlustir ekki!!!

Sigþóra Guðmundsdóttir, 8.3.2008 kl. 11:29

2 Smámynd: Eygló

óborganlegur Kristleifur..

Eygló, dóttir Stjána og Hrefnu

Eygló , 9.3.2008 kl. 14:28

3 Smámynd: Kristleifur Guðmundsson

já ég hiiti Hrefnu og Stjána þegar ég fór í Kringluna eftir Suðurnesjarallið.

þau báðu að heilsa öllum því er hér með komið á framfæri.

Kristleifur Guðmundsson, 9.3.2008 kl. 20:18

4 Smámynd: Snorri Óskarsson

Flott Kristleifur, gaman að sjá eftir þig - þú hefur erft góða meðferð á stafrófinu.

kveðja

Snorri í Betel 

Snorri Óskarsson, 10.3.2008 kl. 00:21

5 Smámynd: Sölvi Breiðfjörð

Þetta er með betri sögum sem ég hef heyrt, hefði alveg eins getað hent mig.

Sölvi Breiðfjörð , 14.3.2008 kl. 08:49

6 Smámynd: Stefán Þór Steindórsson

Kristleifur þetta er frábær saga... lélegt samt af tengdarmömmu þinni að fljúga vitlausa leið...

Stefán Þór Steindórsson, 14.3.2008 kl. 10:59

7 identicon

Sæll stóri frændi,

Þakka þér innilega fyrir að létta manni lundina á blautum miðvikudagsmorgni, þessi saga var snilld og ég veit sem er að þær eru þó nokkrar til af þér.

Á ekki að gefa út bók bráðum ?

Siggi.

Sigurður Þór Björgvinsson (IP-tala skráð) 19.3.2008 kl. 08:13

8 identicon

Bók þú segir skrýtlu. það yrði nú ljóta útgáfan. málsóknir og læti. en sagan af því þegar þú lést mig týnast á fermingardaginn minn með þeim afleiðingum að ég mætti of seint í athöfnina. yrði pottþétt þar inni.

Kveðja frá okkur Eyjamönnum Kristleifur

Kristleifur (IP-tala skráð) 19.3.2008 kl. 11:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Kristleifur Guðmundsson
Kristleifur Guðmundsson
Svaðalega er gott og gaman að vera ég
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Barabíng barabúm

Blogg-Topplistinn

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 14
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 14
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband