Sorry var búinn að gleyma þessu svæði

það er nú einu sinni bara þannig að maður er alls ekki nógu duglegur að skrifa hér inn.

en nú líður að árgangsmóti og maður fer á flug. árgangur 69 er að sumir vilja meina kominn undir við vægast sagt skrýtnar aðstæður. en einhvern vegin finnst mér það ótrúlegt þar sem það er ekki líffræðilega hægt. jæja nóg um það hvernig hver kom undir.

loðnan komin á fullt eða allavega hálft. Snjórinn hlýtur að fara að verða þreyttur á að láta traðka á sér og láta henda sér fram og til baka með skóflum.

ég var að tala við mann í borg óttans um daginn þegar ekkert útlit var fyrir að loðnurassgatið ætlaði að láta sjá sig og þorskurinn ný skroppinn saman en hann skildi ekki hvað ég var að hafa áhyggjur af því ekki væri ég á sjó eða að vinna við fiskafurðir á einn eða annan hátt. er þetta ekki dæmigert að hitaveitusvæðiskenningar þess efnis að peningar þjóðfélagsins verði til af því að senda hvort öðru tölvupóst og selja og kaupa húsnæði sitt á sundi í bankalánum sem fara að drekkja landanum í rólegheitum á næstu misserum.

allir í bátana eða hvað er svosem að marka mig.   

    


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Týpískt fyrir þetta hitaveitulið

Óli (IP-tala skráð) 2.3.2008 kl. 18:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Kristleifur Guðmundsson
Kristleifur Guðmundsson
Svaðalega er gott og gaman að vera ég
Ágúst 2025
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Barabíng barabúm

Blogg-Topplistinn

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.8.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 25
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 13
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband